Sjúkranudd
Sjúkranudd er samþætting fjölmargra meðferðaforma í lækningaskyni, meðhöndlun á mjúkvefjum, liðum o.fl. eftir sjúkdóma og meiðsl. Sjúkranudd er einnig notað sem fyrirbyggjandi meðferð til þess að koma í veg fyrir ýmis óþægindi og sjúkdómseinkenni. Með minni vöðvaspennu eykst flutningur súrefnis og næringar til vefja, vöðvar og sinar mýkjast og verkir minnka. Sjúkranudd hefur einnig áhrif á samgróninga, t.d. í kjölfar líkamsmeiðsla, skurðaðgerða, bólgu eða gamalla meiðsla.