SOV meðferð

Sérstakri nuddtækni er beitt á fætur og hendur til að hafa áhrif á nuddþega til heilsubótar. Með þrýstinuddi á tiltekin svæði handa og fóta næst fram örvun eða slökun á tilteknum stöðum í líkamanum. Svæðameðferð byggir á að sérhvert líffæri og líkamssvæði eigi sér samsvörun í áhrifasvæði á fótum Viðbragðsfræði nýtist sem þrýstimeðferð á taugaviðbragðssvæði og á punkta á orkubrautum líkamans þar sem þær liggja um hendur og fætur. Líkami okkar hefur orkukerfi, þar sem lífsorka flæðir eftir ákveðnum orkubrautum og að hægt er að hafa áhrif á þetta orkukerfi, t.d. með þrýstimeðferð á punkta sem liggja á orkubrautunum. . SOVmeðferð er afar árangursrík við að ná fram slökun og vellíðan, auka orkuflæði líkamans og styrkja hann þar með til sjálfshjálpar.